giovedì, marzo 16, 2006

Jæja skvízan er byrjuð að blogga....

Jæja þá er ég byrjuð að blogga eins og allir hinir :-) Ógó töff skiluru. Eftir ítölskutíman minn í gær fórum við Snorri í heimsókn til okkar bestustu vina Crúza og Sexy ( aka Krúsa og Siggu ). Við vorum sko að plana og ganga frá ferðinni okkar saman til Köben. Við erum sko að fara 7. september á þessu ári(bara svo það sé á hreinu) ... ekki ráð nema í tíma sé tekið sko. Við ætlum að nota tækifærið til að kaupa Strigið, alla kastalana, Tívolíð, Bakken og margt margt fleira sem hinir íslendingarnir eru ekki þegar búnir að kaupa .... helv græðgi alltaf. Reyndar væri spurning hvort þarna mundu Crúzi og Snorri nota tækfærið til að láta gamlan draum rætast og opna Áthús Dúdda ... en tíminn leiðir það bara í ljós hvort þeir eru menn eða mús(ir). Reyndar erum við Sexy að hugsa um að kíkja til Malmö til að verzla pínulítið eftir að hafa fengið þetta líka fína tipz frá Hafliða vini okkar með það. Ykkur verður sko leyft að fylgjast með framvindu mála þegar nærdregur get ég sagt ykkur. Ahhhhh eitt en við verðum á Hótel Danmark í Kaupmannahöfn. Bara svona ef einhverjir vildu hitta á okkur í Danmörku á meðan við erum þar skiluru ;-)

2 Commenti:

Alle 11:10 PM , Anonymous Anonimo ha detto...

Velkomin í hóp okkar bloggara... hehe. Til hamingju og vertu dugleg að leyfa okkur sem ekki gerum mikið að fylgjast með þér hér. Jóhanna

 
Alle 7:16 PM , Anonymous Anonimo ha detto...

Hallo Halloooo ?Tad er aldrei bara ordin TOFF HEHE byrjud ad blogga !!!Ja tad sem eg get sagt tvi ekki er eg neitt toff er sjalf ekki ad blogga ennta en kannski eftir ad eg kem til Islands ta byrja eg og verd FLOTT lika :) Annars er rosa gaman ad lesa bloggid tit Hafdis tad er alveg hrikalega fyndid HE HE AAAAAA;serstaklega VILLIDYRID undir styri :)Jaeja nog i bili bid ad heilsa og eg held afram ad lesa siduna tina Bea i bili Margret

 

Posta un commento

Iscriviti a Commenti sul post [Atom]

<< Home page