mercoledì, marzo 29, 2006

Ógiiislega gaman saman

Ég er búin að vera á leiðinni að blogga um síðasta laugardagskvöld/nótt. Þá fórum við í matarboð til Eggerts og Snæfríðar. Þau eru partur af vinahópnum okkar. Þau voru með hrikalega góðan mat sem var eldaður á staðnum í nýja eldhúsinu þeirra. Hann saman stóð af sveppasúpu, lambalundum m/appelsínusósu og í eftirrétt var ávaxtasalat með vanillukremsrjóma. Eins og ég sagði þá var þetta alveg hrikalega góður matur. Ég var svo heppin að Halli borðaði ekki sinn eftirrétt þannig að ég fékk hans skammt :-) ógiislega gott skiluru. Við tókum það bara rólega við að borða og nutum þess alveg fram í fingurgóma .. ummmmm.
Þegar líða tók á kvöldið komust flestir að því að vatnið þarna hjá þeim Eggerti og Snæfríði er eitthvað skemmt því allir sem drukku það urðu eitthvað svo léttir og extra skemmtilegir, þó sérstaklega Sexy. Á tímabili leit nú út fyrir "slagsmál" þegar farið var að ræða pólitík en þá tók Sexy málið í sínar hendur og ákvað að dansa fyrir okkur súludans og var Raggi notaður sem súlan :-Þ Honum til takmarkalausrar gleði. Hún á alveg framtíðina fyrir sér í þessari atvinnugrein ef hún ákveður að leggja hana fyrir sig en það er líka spurning hvort þetta sé ekki bara fínt sem aukavinna fyrir hana. Raggi er náttla sjálfkjörinn sem súlan hennar í framtíðinni :-P Undir morgun (6:00) þá var nóg komið af skemmtilegheitum og var þá haldið úr sveitinni í höfuðborgina. Ég verð nú að viðurkenna að ég var nú ansi þreytt þegar ég fór á fætur um hádegi á sunnudeginum :-s

7 Commenti:

Alle 8:34 PM , Anonymous Anonimo ha detto...

Þetta var nú líka ógísslega skemmtilegt allt saman. Sérstaklega súludagnsinn.

 
Alle 8:38 PM , Anonymous Anonimo ha detto...

Og ég er steingleymdi í allri sjálfhverfunni að óska þér innilega til hamingju með þetta bráðskemmtilega blogg. Meira af þessu stelpa!

 
Alle 4:48 PM , Anonymous Anonimo ha detto...

Flott blogg hjá þér .......meira af þessu :-)

Nú það þurfti einhver að sjá um súludansinn úr því að búið var að lofa honum en undirrituð gerðist samt engin Úrsúla.

 
Alle 11:52 PM , Blogger Dýza skvíza ha detto...

Það er aldei að vita nema ég taka að mér súludansinn ef ég fæ getnaðarlega súlu ;-Þ Nema við Sexy förum í súludanskeppni í næsta teiti...hehe

 
Alle 6:16 PM , Anonymous Anonimo ha detto...

Hafdís Jóna Gunnarsdóttir ..
Þú ert sko alls ekki að fara strippa :']
Haha ..
Vibbarnir ykkar :')
Haha..

 
Alle 1:31 AM , Anonymous Anonimo ha detto...

Er ekki kominn tími á blogg dyza skvíza?

 
Alle 4:59 PM , Anonymous Anonimo ha detto...

Klukk til baka Dyza skvíza 10 mest ómissandi lög ever

 

Posta un commento

Iscriviti a Commenti sul post [Atom]

<< Home page