lunedì, luglio 24, 2006

Nauthólsvík með pempíunni Snorra Halldóri :D

Á föstudaginn hætti ég snemma í vinnunni og ákvað að nota góða veðrið í annað en horfa á það út um gluggann. Ég og Snorri Halldór ákváðum að fara hjólandi (á reiðhjólum) í Nauthólsvík og busla aðeins í sjónum þar.
Það var alveg dágóð glás af fólki þarna enda alveg hriiiiikalega gott veður. Ég uppgötvaði það þarna að sonur minn er algjör pempía :s Ég veit ekki hvar þessi umsnúningur varð á honum sem alltaf var að skoða köngulær, orma eða bara allt lífið og lét fátt hræða sig. Þarna í Nauthólsvík stóð hann í sandinum og hálf veinaði að ég skildi nú passa mig á þessu og hinu !!! AHHH mamma passaðu þig ef þú sérð svona blautan hring þá getur það verið þessi ormurinn. Ég nennti nú ekki að hlusta á svona kerlingartuð og dró hann út í vatnið og þá byrjaði: ahhh þetta er svo kalt ..... döööö hvað ég var hissa. Hann tuðaði líka yfir sandinum sem festist á milli tánna á honum - meðan ég naut þess alveg fram í fingurgóma að vaða þarna í sjónum og finna sandinn klessast á milli tánna.
Ég ákvað að bæta honum aðeins upp sálarkvölina og bauð honum á kaffihúsið Nauthól og gaf honum þar ostaköku og gosglas. Þannig að hann komst frá þessu þokkalega óskemmdur á sálinnu - það er nefnilega alltaf hægt að bæta honum allt upp með mat þó það sjáist nú ekki á honum þessari elsku :D Ég naut þess að vera þarna og hann lifði þetta af :D

2 Commenti:

Alle 2:03 PM , Anonymous Anonimo ha detto...

Hae Hae ja tad var sko vedrid til ad fara a "STRONDINA" :)ja tessir drengir eru stundum godir he he ,..Ja heyrðu nu er eg ordin eins og allir aðrir komin med BLOGG sidu ,ja paeldidi setti hana upp um daginn ( eda tannig ) eg kannn ekkert ad gera tetta fint hja mer en tad kannski kemur ,en sidan er blog.central,is/deleon tekkadu a tvi ,en allavega nog i bili vid bara sjaumst fljott ( aetlid ðid ekki med okkur vestur lika a fostudaginn????? :) jAEJA VINKONA MIN VID SJAUMST I KVOLD kvedja Margret

 
Alle 12:02 PM , Blogger Dýza skvíza ha detto...

Það er nú eins gott að þú þjálfir þig fyrir Tenerife, Sexy mín :D Sjáumst vonandi næsta laugardag á Sluxa 2006....

 

Posta un commento

Iscriviti a Commenti sul post [Atom]

<< Home page