giovedì, agosto 16, 2007

New York - New York

Úff uppáhaldssynir mínir eru í New York þessa stundina og verða þar til 20. ágúst. Það er ekkert smá sem ég sakna þeirra. Sem betur fer hringja þeir og tala við mömmu sína á hverjum degi nánast. Um daginn þegar þeir hringdu þá var það til þess að hrella mig. Þeir voru á leið á tónleika upp í Bronx. Þeir sögðu mér að þegar þeir hefðu beðið um leiðbeiningar hjá manninum í gestamóttökunni á hótelinu sínu hefði hann krossað sig í bak og fyrir og ekkert verið alltof hress með þessa svaðilför þeirra. Þeir komust nú heilu og höldu frá þessari svaðilför. Næstu tónleikar þeirra eru tónleika með Justin Timberlake. Ég væri sko rúmlega til í að fara með þeim á þá en verð á láta duga að fara að sjá hann Palla minn annað kvöld á Laugardalsvelli. Hann er líka marfalt betri en Justin Timberlake :D Stanslaust stuð skiluru - hehe.......

0 Commenti:

Posta un commento

Iscriviti a Commenti sul post [Atom]

<< Home page